











|
Hlíðaból fékk þann heiður að flagga
grænfánanum í fyrsta sinn og fyrstur leikskóla á Akureyri vorið 2006
eftir að hafa verið á grænni grein í nokkra mánuði. Á tuttugu ára
afmæli leikskólans, vorið 2008, fengum við fánann afhentan í annað sinn
og núna, árið 2010, sækjum við í þriðja sinn um fánann. Við í
Hlíðabóli viljum stuðla að því að farið sé vel með sköpun Guðs og þar
með talið manninn sjálfan. Við reynum að koma vel fram við hvert
annað, endurvinna það sem hægt er, eins og t.d. mjólkurfernur, dósir,
gler, ál og fleira. Við vinnum mikið með verðlaust efni, spörum
vatn og rafmagn, höldum umhverfinu snyrtilegu og setjum matarafganga í
moltukassa svo eitthvað sé nefnt.
Við viljum hvetja þig til að gera það
sem þú getur til verndar sköpunnarverki Guðs.
|