Val
Valkerfi byggir á þeirri hugmynd að barn læri af eigin áhugahvöt, því er
börnunum gefið val um leiksvæði eða starf, svo þau hafi kost á að víkka
þessa innri áhugahvöt sín. Valið er ramminn utan um frjálsa leikinn. Í vali gefst barni kostur á að efla sjálfstæði sitt og sjálfstraust með
því að læra að taka ákvörðun og standa við hana.
Í Hlíðabóli er val 3x í viku. Valsvæðin eru 5 í ár og hvert um sig
hugsað sem rammi utan um ákveðið leikform. Rauða-herbergið er
listsköpunarsvæði, þar geta verið 6 börn við margskonar listsköpun. Gula
– herbergið er hentugast fyrir hlutverkaleikinn, þar sem börnin sjálf
eru í aðalhlutverki. Skólinn á töluvert af búningum sem vinsælt er að
nota, gólfpláss er mikið og hægt að vera með alls kyns leikefni í boði.
8 börn geta valið í gula hverju sinni. Appelsínugula- herbergið er ekki
eiginlegt herbergi heldur leikloftið í gula og er búið að útbúa þar
tölvuver. Nýlega var fjárfest í tveimur nýjum tölvum sem eru staðsettar
á loftinu, 4 börn geta valið tölvuvinnu, leikskólinn hefur verið að viða
að sér tölvuleikjum sem starfsmenn telja henta leikskólabörnum.
Bláa-herbergið er ætlað fyrir hreyfingu, einingakubba og annað
plássfrekt leikefni. Þar eru engin húsgögn, en rimlar, krókar fyrir
rólur, leiktjöld og fjölbreyttur búnaður til hreyfileikja. 8 börn geta
valið í bláa. Græna-herbergið er hugsað fyrir fínhreyfingu, þar er boðið
upp á spil, púsl, kubba, perlur o.þ.h. þar er einnig leikloft en þar fer
fram hlutverkaleikur. Í græna geta valið 10 börn hverju sinni. Í upphafi
valstundar safnast öll börn á aldrinum 3 – 6 ára saman í holinu. Stór
motta er sett á gólfið og þar sitja börnin. Valstjóri stýrir stundinni
og byrjar á því að kynna hvaða svæði eru í boði. Hann er með myndir af
börnunum sem raðað er í ákv. röð til að gæta þess að ekki sé alltaf sá
sami sem byrjar að velja.
Í valinu er notuð T.M.T tákn sem hvert og eitt barn fær í upphafi
skólagöngu. Er þessi háttur hafður á til að reyna að halda aftur af
hávaða sem oft myndast þegar margir eru saman komnir á einum stað,
einnig er þetta liður í að tapa ekki niður leikninni í að nota táknin.
Þegar barnið sér táknið sitt stendur það upp fær myndina sína í hendur
og velur sér svæði. Val er tvisvar á dag og getur barnið valið sitt
hvort svæðið ef það vill, en starfsmenn eru alla vikuna á sama svæðinu
og hafa yfirumsjón með því svæði þessa þrjá daga sem boðið er upp á val.
|
|
Hópastarf
Hópastarf er mikilvægur þáttur í leikskólastarfi. Í hópastarfi öðlast
barn skilning á gildi samvinnu og þroskar með sér samkennd og
ábyrgðartilfinningu. Heilbrigt hópastarf örvar þroska einstaklings,
þroski einstaklings auðgar starf hópsins.
Hópastarf er tvisvar í viku, þá eru öll börnin í aldursskiptum hópum með
sínum hópstjóra.
Hópaskiptingin er þvert á deildir en allt starf yngstu og elstu barnanna
fer fram í yngstu- og elstubarnastarfi. Hópastarfið hefur þrjú
meginviðfangsefni. 1. listsköpun og föndur sem fram fer í rauða-og
bleika herberginu. 2. tjáning og framsögn fer fram í gula herberginu. 3.
leikir og hreyfing fer fram í bláa herberginu.
Í hópastarfinu er verið að sinna einstaklingnum sem best um leið og hann
lærir að leika og starfa í föstum hóp sem verður samhentur og kynnist
vel innbyrðis. |